Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit frá fyrra degi Íslandsmóts unglinga

Á fyrri degi Íslandsmóts unglinga var keppt til úrslita í tvenndarleik og í einliðaleik í fjórum stúlknaflokkum, en fram að undanúrslitum í einliðaleik í öllum flokkum drengja sem og táta. Íslandsmeistarar í einliðaleik urðu Þóra Þórisdóttir, KR í telpnaflokki (f. 2003-2004), Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR í meyjaflokki (f. 2001-2002), Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, HK í stúlknaflokki (f. 1998-2000) og Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, KR í flokki ungmenna stúlkna (f. 1995-1997). KR sigraði í öllum aldursflokkum í tvenndarleik: Ellert Kristján Georgsson og Sveina Rósa Sigurðardóttir í flokki fæddra 2001 og síðar, Breki Þórðarson og Ársól Arnardóttir í flokki fæddra 1998-2000 og Pétur Gunnarsson og Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir í tvenndarkeppni fæddra 1995-1997.

Sunnudaginn 6. mars er keppt í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik í 6 flokkum.

Úrslit í einstökum flokkum

Einliðaleikur telpna f 2003-2004

1        Þóra Þórisdóttir, KR

2       Hildur Marín Gísladóttir, Ungmf. Samherjar

3       Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR

4       Hildur Halla Þorvaldsdóttir, KR

Þóra sigraði nokkuð óvænt, þar sem hún var 4. stigahæsti keppandinn í flokknum. Hún vann alla sína leiki og lagði Hildi Marín 3-1 (11-8, 12-10, 9-11, 11-6).

Einliðaleikur meyja f 2001-2002

1        Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR

2       Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur

3       Guðbjörg Lív Margrétardóttir, KR

4       Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingur

Sveina lagði Stellu í oddalotu 5-11, 12-10, 11-5, 9-11, 11-2 og vann sinn annan titil á mótinu. Þetta var þriðji titill Sveinu í einliðaleik.

Einliðaleikur stúlkna f 1998-2000

1       Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, HK

2       Ársól Arnardóttir, KR

Kolfinna sigraði Ársól í þremur jöfnum lotum, 13-11, 13-11, 11-9, og sigraði í flokknum annað árið í röð og fimmta árið í röð í einliðaleik.

Einliðaleikur ungmenna stúlkna f 1995-1997

1       Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, KR

Sigrún var eini skráði keppandinn í flokknum.

Tvenndarkeppni f 2001 og síðar

1       Ellert Kristján Georgsson+Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR

2       Ingi Darvis Rodriguez+Stella Karen Kristjánsdóttir, Víkingur

3-4  Karl Andersson Claesson+Guðbjörg Lív Margrétardóttir, KR

3-4    Ísak Indriði Unnarsson+Þórunn Ásta Árnadóttir, Víkingur

Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi en þau Ellert og Sveina höfðu sigur í oddalotu 11-9, 5-11, 11-9, 6-11, 11-8. Ellert vann þar með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.

Tvenndarkeppni f 1998-2000

1       Breki Þórðarson+Ársól Arnardóttir, KR

2       Magnús Gauti Úlfarsson+Sól Kristínardóttir Mixa, BH

3       Birgir Ívarsson+Alexía Kristínardóttir Mixa, BH

Hinar 10 ára gömlu tvíburasystur úr BH spiluðu upp fyrir sig í aldri en Breki og Ársól höfðu sigur gegn Magnúsi Gauta og Sól, 3-1 (11-7, 11-6, 10-12, 11.6). Breki sigraði því í þessum flokki annað árið í röð.

Tvenndarkeppni ungmenna f 1995-1997

1       Pétur Gunnarsson+Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir, KR

2       Skúli Gunnarsson+Bergrún Linda Björgvinsdóttir, KR/Dímon

3       Björn Gunnarsson+Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir, HK

Þau Pétur og Sigrún sigruðu örugglega í úrslitaleiknum (11-7, 11-8, 11-7) og vörðu titilinn, sem þau unnu í fyrra.

Úrslit úr öllum leikjum fá sjá á vef Tournament Software, http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=D49054D2-F97D-48F4-93AF-61992908F782

Á meðfylgjandi mynd frá Guðmundi Halldórssyni má sjá Ellert og Sveinu eftir að Íslandsmeistaratitillinn í tvenndarleik var í höfn.

 

ÁMU

Aðrar fréttir