Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit úr aldursflokkamóti BH sunnudaginn 12. janúar 2020

Fyrsta aldursflokkamót ársins fór fram í BH húsinu í Hafnarfirði sunnudaginn 12. janúar 2020. Á mótinu tóku þátt 62 keppendur frá BH, Víkingi, KR, HK og Garpi. Næsta aldursflokkamót verður haldið hjá Víkingum í TBR húsinu þann 8. febrúar nk.

Umgjörð mótsins var góð, kaffi, ávaxtaglös, skúffukökur og bananar í boði hússins. Allir þeir sem þátt tóku í Hnokka og Tátuflokkum fengu verðlaunapeninga.

Úrslit í einstökum aldursflokkum á mótinu voru eftirfarandi:

Hnokkar fæddir 2009 og síðar:

  1. Tómas Hinrik Holloway KR
  2. Styrmir Haukur Sigurðsson BH
  3. – 4. Einar Karl Kristinsson BH og Jökull Ernir Steinarsson Garpi

Tátur og Telpur fædd 2007 og síðar:

  1. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir KR
  2. Þórdís Lilja Jónsdóttir BH
  3. Lisbeth Viðja Hjartardótttir Garpi
  4. Iðunn Helgadóttir KR

Piltar fæddir 2007-2008:

  1. Alexander Chavarov Ivanov BH
  2. Nikulás Dagur Jónsson BH
  3. – 4. Anton Óskar Ólafsson HK og Dagur Orrason Víkingi

Athygli vekur árangur Nikulás Dags sem lenti í 2. sæti í flokknum en hann er 10 ára og spilaði upp fyrir sig á mótinu.

Sveinar fæddir 2005-2006:

  1. Eiríkur Logi Gunnarsson KR
  2. Kristófer Júlían Björnsson BH
  3. – 4. Eiríkur Freyr Bergþóruson Garpi og Kormákur Hólmsteinn Friðriksson KR

Stúlkur og Meyjar fæddar 2002-2006:

  1. Alexía Kristínardóttir Mixa BH
  2. Sandra Dís Guðmundsdóttir BH
  3. Sara Elísabet Jónsdóttir BH

Drengir fæddir 2002-2004:

  1. Þórbergur Freyr Pálmarson BH
  2. Thor Thors KR
  3. Matthías Benjamínsson KR
  4. Askur Ingi Bjarnson Víkingi

Aðrar fréttir