Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Úrslit úr aldursflokkamóti KR 9. janúar

Ágæt þátttaka var á aldursflokkamóti KR, sem haldið var í Íþróttahúsi Hagaskóla laugardaginn 9. janúar. Mótið var þriðja mótið í aldursflokkamótaröð Borðtennissambands Íslands. Keppendur komu frá BH, Dímon, Heklu, HK, ÍFR, KR og Víkingi. Keppni var jöfn og spennandi og það var aðeins í tveimur flokkum af átta að stigahæsti leikmaðurinn á styrkleikalistanum sigraði.

Hnokkar fæddir 2005 og síðar

  1. Eiríkur Logi Gunnarsson, KR
  2. Bjarni Þorvaldsson, Dímon
  3. Kristófer Júlían Björnsson, BH
  4. Rúnar Þorvaldsson, Dímon

Í þessum flokki voru margir jafnir og skemmtilegir leikir og sýndu þessu ungu leikmenn flott tilþrif. Eiríkur Logi sigraði Bjarna 3-1 (11-9, 8-11, 11-9, 11-7) í úrslitaleiknum. Mynd af verðlaunahöfum í hnokkaflokki má sjá á forsíðunni.

tatur Grand prix KR 2016

Verðlaunahafar í tátuflokki. Mynd: Ingimar Ingimarsson.

Tátur fæddar 2005 og síðar

  1. Lilja Lív Margrétardóttir, KR
  2. Karitas Ármannsdóttir, KR
  3. Sól Kristínardóttir Mixa, BH
  4. Berglind Anna Magnúsdóttir, KR

Lilja sigraði Karitas 3-0 (11-8, 11-7, 11-5) í úrslitum í fyrsta skipti á móti í vetur. Þær eru nú efstar og jafnar í tátuflokki á aldursflokkamótaröðinni.

Verðlaunahafar í piltaflokki. Mynd: Kristján Viðar Haraldsson

Verðlaunahafar í piltaflokki. Mynd: Kristján Viðar Haraldsson

Piltar fæddir 2003-2004

  1. Ari Benediktsson, KR
  2. Þorgils Gunnarsson, Heklu

3.-4.   Aron Birkir Guðmundsson, Heklu

3.-4.   Steinar Andrason, KR

Þorgils hafði unnið tvö fyrstu mótin í aldursflokkamótaröðinni en Ari var sterkari á þessu móti og sigraði Þorgils bæði í riðlinum og í úrslitaleiknum. Úrslitaleikurinn fór 3-2 (14-12, 8-11, 11-9, 5-11, 11-6) fyrir Ara. Þorgils er áfram efstur í mótaröðinni.

Verðlaunahafar í telpnaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Verðlaunahafar í telpnaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Telpur fæddar 2003-2004

  1. Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, KR
  2. Þóra Þórisdóttir, KR
  3. Þuríður Þöll Bjarnadóttir, KR

Kristín lagði Þóru 3-1 (13-11, 11-7, 7-11, 11-6) í úrslitaleiknum en Þuríður er efst í mótaröðunni.

Verðlaunahafar í sveinaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Verðlaunahafar í sveinaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Sveinar fæddir 2001-2002

  1. Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi
  2. Kári Ármannsson, KR

3.-4.   Ellert Kristján Georgsson, KR

3.-4.   Óskar Agnarsson, HK

Kári Ármannsson vann tvö fyrstu mótin á mótaröðinni í vetur en hann mátti játa sig sigraðan fyrir Inga í úrslitaleiknum, sem Ingi vann eftir þrjár jafnar og spennandi lotur (11-9, 12-10, 17-15). Kári heldur forystu í mótaröðinni.

Verðlaunahafar í meyjaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Verðlaunahafar í meyjaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Meyjar fæddar 2001-2002

  1. Sveina Rósa Sigurðardóttir, KR
  2. Stella Karen Kristjánsdóttir, Vík.
  3. Þórunn Ásta Árnadóttir, Vík.
  4. Guðbjörg Lív Margrétardóttir, KR

Sveina Rósa Sigurðardóttir sigraði í meyjaflokki. Hún lagði Stellu 3-0 (12-10, 13-11, 11-8) í úrslitaleiknum, og tók forystuna í meyjaflokki í mótaröðinni.

Verðlaunahafar í drengjaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Verðlaunahafar í drengjaflokki. Mynd: Guðrún G Björnsdóttir

Drengir fæddir 1998-2000

  1. Magnús Gauti Úlfarsson, BH
  2. Breki Þórðarson, KR
  3. Birgir Ívarsson, BH
  4. Kamil Mocek, Vík.

Magnús Gauti tók forystu í mótaröðinni með sigri á Breka í úrslitaleik 3-2 (11-8, 8-11, 11-8, 7-11, 11-5).

Verðlaunahafar í stúlknaflokki. Mynd: Kristján Viðar Haraldsson

Verðlaunahafar í stúlknaflokki. Mynd: Kristján Viðar Haraldsson

Stúlkur fæddar 1998-2000

  1. Ársól Arnardóttir, KR
  2. Rikka Sigríksdóttir, Dímon
  3. Elín Eva Sigurðardóttir, Dímon

Ársól var öruggur sigurvegari í flokknum og vann Rikku 3-0 (11-3, 11-2, 11-9 í úrslitum).

 

ÁMU (uppfært með myndum 10.1.)

Aðrar fréttir